Leigufélag Búseta ehf., kt. 561001-3910 heimilisfang, Reykjavík, (hér eftir „Leigufélag Búseta“ eða „félagið“), er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari tilkynningu má sjá hvaða persónuupplýsingum Búseti safnar um einstaklinga vegna leiguíbúða og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað við geymum þær lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli Búseti safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Hvaða persónuupplýsingum safnar Búseti um þig?
Búseti safnar eftirfarandi persónuupplýsingum um einstaklinga vegna leiguíbúða:
Af hverju safnar Búseti persónuupplýsingum um þig?
Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að.
Á hvaða lagagrundvelli vinnur Búseti persónuupplýsingar um þig?
Búseti safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:
Hve lengi geymir Búseti persónuupplýsingar um þig?
Búseti geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.
Frá hverjum safnar Búseti upplýsingum um þig?
Búseti safnar persónuupplýsingum frá þér beint. Að auki safnar fyrirtækið persónuupplýsingum frá Credit Info en það er aldrei gert án þíns samþykkis og vitundar. Einnig fáum við í einstaka tilfellum persónuupplýsingar frá öðrum þriðja aðila, svo sem vegna kvartana af hálfu nágranna.
Skráningargögn heimasíðu
Félagið safnar upplýsingum sem vafri þinn sendir þegar þú heimsækir heimasíðu félagsins (,,skráningargögn“). Þessi skráningargögn geta falið í sér upplýsingar eins og IP-tölu, tegund vafra, útgáfu vafra, síður þeirrar þjónustu sem þú heimsækir, tíma og dagsetningu heimsóknar og önnur talnagögn.
Hvenær miðlar Búseti þínum persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?
Búseti miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem eru ráðnir af fyrirtækinu til að vinna fyrirfram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, umboðsmanna eða verktaka. Í þeim tilfellum gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum Búseta um meðferð persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti.
Búseti miðlar einnig upplýsingum þegar skylda stendur til þess samkvæmt lögum eða þegar það er nauðsynlegt til að gæta lögmætra hagsmuna félagsins, til dæmis lögmanna vegna vanskila af hálfu leigjenda.
Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið
Búseta er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fyrirtækið gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Öryggi persónuupplýsinga
Búseti hefur gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar fyrirtækið að því að starfsmenn fái reglulega viðeigandi fræðslu og þjálfun um öryggismál.
Réttindi þín
Hafir þú veitt samþykki þitt fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga átt þú rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá nýtur þú einnig annarra réttinda, svo sem réttar til aðgangs að þínum gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum um þig verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þig og réttar til að flytja eigin gögn. Hafa skal í huga að réttindi þín eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.
Samskiptaupplýsingar
Hjá félaginu hefur þjónustu- og samskiptasvið umsjón með eftirfylgni þessarar persónuverndarstefnu. Ef þú hefur frekari spurningar um hvernig Búseti meðhöndlar þínar persónuupplýsingar þá er hér að neðan samskiptaupplýsingar.
Nafn: Leigufélag Búseta ehf.
Heimilisfang: Síðumúli 10, 108 Reykjavík.
Netfang: leigufelag@buseti.is.
Sími: 5561000
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá persónuvernd
Dragir þú í efa að Búseti meðhöndli persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd.
Gildistaka
Þessi stefna var samþykkt af þann 10. ágúst 2018 og tóku gildi við það tímamark.