Búseti Húsnæðissamvinnufélag fékk á dögunum viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2018 samkvæmt samantekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Búseti er í 9. sæti af rúmlega 1.100 fyrirtækjum sem komust á listann.
Þá fékk Leigufélag Búseta viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki Credinfo annað árið í röð. Leigufélag Búseta er meðal 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfyllir skilyrði Creditinfo.