Hlutverk Leigufélags Búseta er að bjóða einstaklingum og fjölskyldum upp á íbúðir til tryggrar leigu með áherslu á langtímahugsun
Leigufélag Búseta er dótturfélag Búseta húsnæðissamvinnufélags. Leigufélagið leggur áherslu á að hlúa vel að leigjendum í húsnæði sem fær gott viðhald og góða umhirðu.
Byggt á þessu og sanngjörnu leiguverði horfa leigjendur Búseta fram á veginn og geta gert ráð fyrir að hafa húsnæðið til afnota til lengri tíma en almennt þekkist á íslenskum leigumarkaði.
Leigufélag Búseta býður upp á úrval fasteigna á höfuðborgarsvæðinu. Félagið veitir persónulega og góða þjónustu um leið og það leggur áherslu á að efla hag þeirra sem kjósa að leigja.